Árnahellir friðlýstur

Sá merki atburður átti sér stað í dag að Árnahellir í Leitarhrauni var friðlýstur. Undirbúningar að friðlýsingunni hefur staðið yfir í nokkur ár, en til að friðlýsing geti átt sér stað þarf formaður Hellarannsóknarfélags Íslands, Umhverfisráðherra og forstöðumaður Náttúruverndar ríkisins að leggja blessun sína yfir gjörninginn. Undirritun fór fram í opi Árnahellis að viðstöddu fjölmenni. Árnahellir fannst árið 1985 af Árna B. Stefánssyni, meðlim í Hellarannsóknarfélaginu, og er annar hellirinn á Íslandi til að verða friðlýstur, en hinn er Jörundur í Lambahrauni. Árnahellir er um 150metra langur og liggur á um 20 metra dýpi. Í Árnahelli eru miklar breiður af hraunstráum og dropsteinum og er sem um steingerðan frumskóg að horfa inn eftir hellinum.
Við sama tilefni var undirritaður samningur milli Náttúruverndarinnar og Hellarannsóknarfélagið þess efnis að félagið taki að sér umsjón, ráðgjöf og eftirlit með friðlýstum hraunhellum og hraunhellum á friðlýstum svæðum.

Eldri fréttir