Nokkuð er síðan að 4. dagur ráðstefnunar fór fram, en sökum anna vefstjóra hefur ekki gefist tími til að skrifa yfirlit fyrr en nú. Helst bar til tíðinda að Azor-eyingarnir voru atkvæða miklir og fjölluðu um hellamennsku í víðum skilningi þess orðs; gagnagrunnar, hella-project í “Torres cave” og flokkun hella var helst á dagskrá þeirra. Azor-eyingar eru með í undirbúningi að opna fleiri hella fyrir ferðamenn, en í dag eru fjórir hellar til sýnis. Flestir hellana eru á einkalandi og því liggur mikil vinna í samningaviðræðum við landeigendur og aðra hlutaðeigandi aðila. Árni B. Stefánsson fjallaði um fimm lóðrétta pitti, flesta í Goðahrauni við Þingvelli. James Begley, dyggur stuðningsmaður Hellarannsóknafélags Íslands, kynnti nýsmíðaðan gagnagrunn félagsins. Miklar og heitar umræður spunnust í kringum fyrirlestur James, í ljósi þess að stefna félagsins er að koma gagnasafninu fyrir á vefnum. Áhersla var lögð á að í þeim gjörning yrðu viðkvæmar upplýsingar ekki hafðar aðgengilegar öllum. Jakob Þ. Guðbjartsson kynnti fyrir ráðstefnugestum íslenska móbergshella, en ekki er vitað til að svona hellar hafi áður verið kynntir á ráðstefnu hellamanna. William Halliday sagði ráðstefnugestum frá hellum sem myndast í “The great crack” á Kilauea-eyju á Hawaii og í beinu framhaldi flutti hann fyrirlestur fyrir Douglas Medville um dreifingu hraunrása á Hawaii. Þó margir vinni að rannsóknum á hellum á Hawaii eru fæstir þeirra vel rannsakaðir og margir eru enn alveg ókannaðir. Hellamönnum sem eiga leið um Kyrrahafi er því bent á að millilenda á Hawaii. Sigurður S. Jónsson flutti fyrirlestur um kortlagningasögu Surtshellis og Stefánshellis, en hana má rekja aftur til íslandsferðar Eggerts og Bjarna. Chris Wood flutti seinasta erindið þennan seinni fyrirlestrardag ráðstefnunar. Fjallaði hann um niðurstöður mælinga á hellum í Eldhrauni og Hallmundarhrauni. Fram kom í máli Chris að framhald hefur fundist á Stefánshelli; mun stærri túba liggur undir hrauninu, heldur en nú er þekkt.
Þegar hefðbundnum erindum var lokið sýndi Greg Middleton myndir frá Samoa eyju í Kyrrahafinu, Árni B. Stefánsson sýndi slidesmyndir úr fjölskyldualbúminu, en merkilegastar voru video-myndir sem Gerald Favre tók á Hawaii og Íslandi. Leiðangurinn á Hawaii samanstóð af vel þekktum hellum og hellum sem aldrei hafði verið farið í. Hawaii er greinilega ævintýraland hellaáhugamanna. Íslandsmynd Geralds fjallaði um leiðangur í íshellana í Kverkfjöllum. Þar átti að freista þess að kanna lengd íshellana. Tvö lið fóru í hellinn, annað að ofan og hitt að neðan. Liðið sem fór að neðan varð að notast við súrefnisgrímur, sökum mikils magns koltvísýrlings í andrúmsloftinu. Til að gera langa sögu stutta þá tókst ekki að kanna hellinn að fullu.
