Helgina 21-22 sept. fór Jakob Þ. Guðbjartsson í vinnuferð á Snæfellsnesið. Tilgangur ferðarinnar var að skoða neðri hluta Purkhólahrauns, en í síðustu ferð á Nesið fundust margir mjög athyglisverðar hraunmyndanir á þessu svæði. Á Nesinu voru fyrir Chris Wood, Greg Middleton og James Begley og tóku þeir þátt í þessari vinnuferð að hluta.
Á heildina litið var ferðin árangursrík að því leiti að stórt svæði var kannað, en vonbrigðin eru þau að engar stórar rásir fundust. Hraunið neðan vegar einkennist af litlum dyngjum sem spúa kviku út til allra átta og mynda mikinn haug af yfirborðshellum og þrýstistrúktúrum. Mikið magn af þessum yfirborðshellum fannst og voru flest svæðin mæld með GPS. Vonir standa til að hægt verði að tengja stóru hraunrásirnar, sem staðsettar eru ofan við dyngjurnar, við þessi svæði. Ein athyglisverðasta myndunin sem fannst er um 30-40m djúp rás, mikið hrunin og ill yfirferðar. Hér er líklega um að ræða djúpa hrauntröð sem hrunið hefur saman skömmu eftir að gosi lauk. Í sjávarklettunum sáust a.m.k. tveir litlir, en fallega lagaðir hellar.
Stefnt er að því að klára Purkhólahraunið í haust og nota veturinn svo til að vinna úr niðurstöðum. Með þessu framhaldi ætti ekki að þurfa nema tvær helgar í viðbót, eina í að klára að labba svæðið og hina til að mæla hellanna.
