Ræddi við Snorra smala og þakkaði honum fyrir upplýsingar. Hann sagði mér þá frá tveimur jarðföllum öðrum, sem hann hefur rekist á og séð hraunrásir í. Annað rakst hann á fyrir nokkrum dögum, en hafði ekki séð það í mörg ár og var búinn að gleyma því. Þetta rifjaðist upp þegar við fórum að ræða við hann um hugsanlegar minjar, rásir og jarðföll á svæðinu. Jarðfallið er ofan við Hrossagjá ofan Réttargjár suðaustan í Heiðinni há. Línan væri norðvestan við Geitafell, u.þ.b. kílómeter ofan við Hrossagjá þar sem heitir Hrossagjárhorn. Jarðfallið er norður af horninu, u.þ.b. 3 metra breitt og tveggja metra djúpt. Niður í því eru rásir, sem liggja NV og SA. Hann hefur aldrei kannað þessi göng sjálfur, en taldi þær lofa góðu. Snorri sagðist vera tilbúinn að teikna upp staðsetninguna svo betra væri að rata þangað. Best væri að fara frá ofanverðu Geitafelli og stefna í vestur eða norðvestur.
Hitt jarðfallið er á Selvogsheiði, norðvestur af Vörðufelli. U.þ.b. háltfíma gangur er þangað frá Strandarhæð, en slóði liggur þaðan í átt að Vörðfelli. Einbúi er þar skammt vestar. Jarðfallið er tæplega mannhæðar hátt og um tveggja metra breitt. Í því er gamalt greni. Opið er þröngur gangur undir klöppina, en þegar inn er komið tekur við rúmgóð hraunrás. Snorri hefur ekki skoðað hana frekar. Jarðfallið, eins og hið fyrra, sést ekki fyrr en komið er alveg að því.
Kveðja,
Ó.
