Endurfundir í Selvogi

Hraunhellar í Selvoginum eru fjölmargir, flestir stuttir, og notkun þeirra helst beinst að fjárgæslu.  FERLIRs menn hafa lengi leitað að einum ákveðnum helli í Selvoginum, en sögusagnir eru um langa hraunrás inn af honum.  Í einni af gönguferðum FERLIRs var gengið á helli sem haldið var að væri hin eini sanni.  Hleðslur eru í hellinum og mikil mold á gólfum.  Eftir ítarlega leit að framhaldi og vangaveltur, veittu þeir því athygli að gólfið í hluta hellisins var mjög frábrugðið því sem sást annars staðar.  Eftir að hafa rótað nokkrum steinum burt, þótti ljós að þetta væri framhald, en hversu stórt vissi enginn.  Ekkert var gert meira í þessari ferð.  Það var svo ekki fyrr en í dag sem sex hellamenn frá HERFÍ héldu í Selvoginn með kúbein, járnkalla og kaðla, sem sannleikurinn kom í ljós.

Í ferðina fóru Björn Harðarsson, Geir Zoega, Jakob Þ. Guðbjartsson,Stígur Geirsson, Tómas Geirsson og Þröstur Jónsson.  Væntingar voru blendnar og allt eins gat svo farið að eini afraksturinn yrði góð gönguferð á fallegum desemebermorgni.  Við bröntlum upp að hellinum, eftir teikningum frá FERLIR, og gerðum okkur klára í leðjumokstur og steinaskak.  Eftir einn og hálfan tíma vorum við orðnir brúnir af drullu og nú hilti í að svar fengist við spurningu FERLIRs manna.  Fyrsti maður inn ýtti á undan sér grjóti, sem rann inn í svartan hellinn og klumdi vel í holrýminu við fallið.  Þetta gat ekki annað en boðað gott.  Eftir að hafa skriðið niður 1m haft þótti ljóst að hér væri á ferð hellir, eða réttarasagt framhald af helli.  Með karbítljósið eitt að vopni hilti í dropsteina, rósir og strá.  Við nánari skoðun kom í ljós að þarna eru heilu skógarnir af strám, hraunrósir liggja á gólfinu um allt og oft mjög þéttar, og dropsteinarnir teljast í tugum og eru svona 50-60cm max.  Oft er stutt í að strá og dropsteinar mætist.  Hellirinn sem slíkur er ekki stór og eitt stórt hrun er í hellinum.  Hinumegin við það heldur dýrðin áfram.  Viðleitni FERLIS til að kanna hið óþekkt og þefa uppi sannanir fyrir sögusagnir hefur skilað sér enn og aftur.  HERFÍ kann þeim miklar þakkir.

Eldri fréttir