Árið 1993 barst það félögum í Hellarannsóknafélaginu til eyrna að í Stórhöfða á Heimaey væri talsverður hellir sem væri þess virði að skoða. Sögur af öðrum hellum á Heimaey hafa flestar verið á þann veg að frekar hafa þær latt hellamenn til dáða. Öðru máli gegndi um Hildarhelli og var það Árni Karl Ingason sem hafði samband við félagið og lýstu því sem hann hafði séð. Tveir hellamenn, Sigurður Sveinn Jónsson og Björn Hróarsson fór til Heimaeyjar með flugi í september og var tekið á móti þeim á flugvellinum af Árna og Gísla Sigmarssyni. Haldið var út í Stórhöfða og gengið fram á brún höfðans norðanverða, eilítið vestan við eiðið sem tengir Stórhöfða við eyna. Grasið grær fram á brún og þar var girðingarstaur sem snæri var bundið í. Síðan þurftu menn að síga niður af brúninni þó rétt aðeins um tvo eða þrjá metra en þá eru menn beint út af opi Hildarhellis: Opið er í klettavegg og er ekki nema um 50-60 cm á breidd og álika hátt. Menn mismunuðu sér inn og hófst þá langt skrið – þó mest megnis á fjórum fótum – en framarlega í hellinum er hann þó það hár að nánast má standa upp. Skemmst er frá því að segja að hellirinn var kortlagður að mestu en enn eru tvær álmur eftir sem bíða þess að vera mældar. Heildarlengd mælda hluta hellisins reyndist vera um 213 metrar. Þessi hellir er áhugaverður fyrir margra hluta sakir. Í honum virðist vera blómleg lundabyggð eins og mynd Björns Jóhanns Guðjohnsen sýnir og í hellinum er talsvert af beinum af óheppnum lunda. Þá má víða sjá tilkomumikil storkuborð og stalla og bríkur ýmiskonar. Hraunið er alkalí-ólivínbasalt, svipað Surtseyjarhraunum og aðskilnaðaræðar og smáir dropsteinar og hraunstrá eða spenar sjást nokkuð víða. Á nokkrum stöðum í hellinum hefur sandur runnið inn í hellinn og myndar hrauka sem benda til þess að sandurinn komi inn um lítið gat. Leiða má að því líkum að þak hellisins sé þunnt og sums staðar séu sprungur opnar til yfirborðs og þar nái sandur að renna inn. Hver veit nema gat ofan í hellinn eigi eftir að finnast á miðjum grasi vöxnum Stórhöfðanum. SSJo.
Hér fyrir neðan er uppdráttur af Hildarhelli og nokkrar myndir.






