Fjórir vaskir hellamenn fóru með Ómari og Eyjólfi (FERLIR) í hellaferð í Herdísarvíkina fyrir nokkru síðan. Planið var að skoða og athuga hvort að nýfundinn hellir væri hinn eini og sanni Breiðabálshellir. Breiðabáshellir þessir á að vera stór megintúba, vel manngeng og stórglæsileg, eða það segja öldungarnir sem sátu yfir fé þarna á svæðinu. Við hinn eina sanna Breiðabás eru margir, lágið hellar og fyrir þá sem nenna ekki í eróbik tíma þá er tilvalið að svitna aðeins undir fjörukambinum. Við James og Geir skriðum allt svæði sundur og saman og telst stór hluti þess svæðið sem við vorum á fullkannaður. Ekki fundum við Breiðabáshelli, en ekki á að gefast upp og planað að fara sér ferð og leita skipulaga að opinu. Bibbi keyrði á móti okkur, en hvarf fljótlega af svæðinu eftir að hann hafði sér staðsetningu. Ljóst er að Bibbi á eftir að horfa vel í kringum sig þegar hann labbar um þetta svæði næst.
Jakob
