Búri – Svelgurinn og hliðargöng

Sunnudaginn 4. febrúar héldu þrettán ferðalngar á þremur jeppum í Búra. Tilgangur ferðarinnar var að síga niður í svelginn og kanna þar nýja holu sem vakti vonir um framhald á þessu gríðarstóra helli.

Línur voru festar og tryggðar og haldið niður og hafist handa. Mikið af grjóti var mokað frá holunni og hún stækkuð. Vonirnar um framhald fóru minnkandi eftir því sem leið á moksturinn og að lokum var ljóst að ekki væri komist áfram. Of varasamt þótti að fara niður í þessa holu í miðju hruni.

Það tók langan tíma að ná fólki upp úr svelgnum enda aðeins einn á línunni í einu og ekki hlaupið að því að “júmma” sig upp. Nokkrir af fyrstu mönnum upp ákváðu að halda af stað til baka og líta betur á ókönnuðu hliðargöngin og freista uppgöngu.

Þegar að hliðargöngum var komið var ekkert annað eftir nema snara á sig klifurbúnaði og reyna fara upp. Þegar komið um 3-4m upp þá tókst ekki betur til en festing losnaði úr veggnum og klifrarinn fékk sýnishorn af aðdráttarafli jarðar.

Ákveðið varf að hætta við hliðargöngin að sinni en það er greinilegt að þar er eitthvað meira en bara sylla. Göngin sem eru í u.þ.b. 7-8m hæð virðast ver um 2m breið og 1,5m á hæð. Þetta þýðir að enn þarf að halda í Búra, betur undirbúinn og með viðeigandi búnað. Veggurinn er lóðréttur fyrstu 5 metrana en leiðin upp er fundin, lítill sylla á “réttum” stað og sprunga sem er góð fyrir festingar.

Efri hluti Búra var ekki kannaður til hlítar en þar er komin hola sem Ferlis menn opnuðu og þar sést í falleg storkuborð.

Búri kemur enn á óvart og er ekki mikið fyrir að sýna innviði sitt á auðveldan hátt.

Eldri fréttir