Eftir ráðstefnuna

Ýmsir þankar leita á menn eftir alþjóðlegu hellaráðstefnuna sem haldin var hér á landi í september síðastliðnum. Menn eru almennt á einu máli um að hún hafi í alla staði tekist vel og eru ummæli erlendra þátttakenda einnig á þá lund. Þeir hrósa Hellarannsóknafélaginu fyrir að hafa staðið vel og vandlega að skipulagningu ráðstefnunnar og eru mjög ánægðir og sáttir. Það helsta sem skyggir á er að þátttakan hefði mátt veri meiri en úr rættist á síðustu stundu og margir íslenskir hellamenn sáu sér fært að reka hausinn inn í lengri eða skemmri tíma. Aðeins tveir Íslendingar tóku þátt í allri ráðstefnunni eins og hún lagði sig, en fimm aðrir komu og tóku þátt í völdum hlutum. Þáttakendur voru flestir frá Ástralíu svo ótrúlega sem það hljómar en þaðan komu alls 10 manns. Íslendingar voru sjö, þegar allt er talið, þá voru sex hellamenn frá Asoreyjum, þrír frá Bretlandi, þrír frá Japan, tveir frá Bandaríkjunum, tveir frá Sviss og einn frá Ítalíu, Saudi-Arabíu og Hollandi.

Margt var fjallað um eins og gefur að skilja og voru flutt fjölmörg athyglisverð erindi á ráðstefnunni. Ráðstefnuhefti er í vinnslu og berast greinar í það hægt og bítandi.

Það er ekki laust við að örlítið spennufall og doði einkenni hellaáhugann eftir þessa miklu törn – alla vega á það við um formanninn en aðrir félagar hafa verið mun duglegri við að skoða hella upp á síðkastið. Það er mjög athyglisvert hversu mikið af upplýsingum hefur verið aflað af FERLIR hópnum en hann er einkar iðinn við kolann.

Ráðstefna sem á undan var lýst er nauðsynleg. Það er engun blöðum um það að fletta og ánægjan sem að því hlýst er mikil. Ástæðan fyrir þessum skrifum er í aðra röndina sú að hvetja menn til að huga að því að á næsta ári verður samskonar ráðstefna haldin á Asoreyjum. Við sem til þekkjum vitum að Asoreyingar leggja sig alla fram um að gera ráðstefnuna eftirminnilega og gera vel við þátttakendur. Ég legg eindregið til að menn fjölmenni því annað tækifæri til að heimsækja nágranna okkar í suðri er ef til ekki innan seilingar. Undirritaður nýtti sér eitt slíkt tækifæri árið 1992 og fór til Asoreyja til að sitja þar ráðstefnu um hraunhella á eyjum Atlantshafsins, en hún var haldin samhliða ársfundi sambands portúgalskra hellafélaga. Heimsóknin var mjög eftirminnileg og athyglisvert hversu hjálplegir allir opinberir aðilar voru skipuleggjendunum. Alls staðar voru matar- og kokkteilboð og farið með þátttakendur eins og tigna gesti. Fjölmargir athyglisverðir hellar voru skoðaðir og staðurinn sem slíkur svíkur engann. Að koma til Vestmanneyja suðursins er lífsreynsla út af fyrir sig. Fylgist með á speleo.is þegar nýjar fréttir berast um framgang skipulagningar ráðstefnunnar á Asoreyjum.

Til er í fórum félagsins diskur með myndefni frá íslensku ráðstefnunni. Þeir sem vilja eignast eintak ættu að hafa samband við Sigurð Svein Jónsson og fá eintak fyrir ekki neitt. Diskar eru skrifaðir og framleiddir eftir þörfum.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr leiðangri formannsins til Asoreyja 1992.

Eldri fréttir