Farið var frá Bergsendum að Krýsuvíkurhelli. Hellirinn var skoðaður á ný. Mannvistarleifar eru bæði ofan við hellisopið og niðri í hellinum sjálfum. Þar er hlaðið skjól. Innan við það liggur rás út að gömlu bjargbrúninni og opnast þar út. Rásin er um 30 metra löng. Út um gatið er hægt að skoða bergið fyrir neðan. Til hliðar, innan við opið, er önnur rás, sem liggur um hraunssúlu og opnast yfir í hina efst í henni. Mikill steinbekkur er framan við súluna, sem skipt hefur hraunstraumnum um rásirnar.
Jarðfall norðan við Krýsuvíkurhelli var kannað, en einungis var hægt að komast stutt þar inn á hvorn veginn sem var. Mögulegt væri að forfæra gjót í hruni innan við eitt opið, en það myndi kost talsverða vinnu. Rás gæti legið þaðan og upp í gegnum hraunið. Bálkahellir var nú skoðaður að ný. Kom sú skoðun mjög á óvart. Fyrst var farið niður um neðsta jarðfallið og niður í hellinn. Farið var með jarðfallinu vinstra megin, en þar lækkað rásin nokkuð en hækkar að nýju uns gólf og loft koma alveg saman. Þarna undir vegg eru tvö stór hraundríli. Farið var til baka og niður aðalgönginn. Þau beygja fyrst til hægri og síðan aftur til vinstri. Þessi göng eru um 200 metra löng og ekkert hrun nema svolítið fyrst. Hellirinn er mjög breiður og þarna á gólfum eru fjölmargir dropasteinar og hraunstrá hanga í loftum. Fara þarf varlega um göngin. Hraunnálar eru í lofti. Þessi hluti hellisins hefur varðveist mjög vel og full ástæða til að fara þarna mjög varlega. Um er að ræða einn fallegasta helli landsins, a.m.k. á Reykjanesi. Neðst beygir hann enn til hægri og þrengist síðan. Í þrengslunum tekur við samfelld dropasteinabreiða.
Skoðað var að nýju upp rásina í neðsta jarðfallinu. Hún er víð og há uns hún lækkar og þrengist. Loks koma gólf og loft saman. Þessi hluti er um 40 metrar. Þá var haldið niður í miðrásina, á móti þeirri, sem skoðuð var áður. Hún lokast loks í þrengslum, en mikið er um fallega dropasteina og hraunnálar. Alls er þessi hluti hellisins um 100 metrar.
Loks var gengið upp úr miðjarðfallinu og upp aðalhellinn. Hann er víður og hár. Skammt fyrir ofan opið skiptist hellirinn í tvennt og hægt að fara umhverfis tvær breiðar hraunsúlur, en meginrásin er til hægri. Ekki er hægt að villast í Bálkahelli. Haldið var áfram upp rásina og yfir hrun, sem þar er ofarlega. Þá sést í efsta opið og bálkana beggja vegna, en af þeim dregur hellirinn nafn sitt. Samtals er Bálkahellir um 450 metra langur. og er neðsti hluti hans sýnum fallegastur.
Að lokum var Arngrímshellir skoðaður, en hellirinn var notaður sem fjárhellir á 18. öld. Gamlar sagnir eru til af því. Hleðslur eru fyrir opum og er tótt framan við stærsta opið, það nyrsta. Inni í hellinum eru allmiklar hleðslur. Hellirinn er bjartur og auðvelt að skoða sig um þar inni, jafnvel ljóslaus.
Á bakaleiðinni var skoðað ofan í nokkrar rásir. Ein var þeirra stærst, en rásin endaði í þrengslum.
Sel eða tóttir sels hafa ekki fundist á eða við Seltún í Hveradal. Við skoðun á svæðinu kom í ljós lítil tótt á grasspildu sunnan hveranna. Hún var fremur lítil og mjög regluleg. Ekki var aðrar minjar að sjá þarna að þessu sinni.
Kv. Ómar
