FERLIR-433:  Breiðabáshellir – Breiðabásfjárhellir

Haldið var að Herdísarvík. Fengist höfðu greinargóðar upplýsingar um týndan helli þar austan við, en hann á að ná frá Breiðabás upp í mitt Mosaskarð í Herdísarvíkurfjalli. Ef það reynist rétt gæti hellirinn verið um 800 metra langur. Sagnir eru til um að vinnumaður í Herdísarvík hafi eitt sinn farið inn í hellinn og en villst þar inni í sjö klukkustundir. Tekin voru mið af lýsingunni (Klofaklettur í Hamragerði). Viti menn. FERLIRsfólkð gekk svo til beint að opinu. Á svæðinu er mörg op, en einungis tvö þeirra virðast fela slungnar rásir. Fyrst var farið inn í rás, sem lokaðist eftir 20 metra. Ofan í rásina hafði fallið grjót, sem auðvelt ætti að vera að forfæra. Innan við það heldur rásin áfram. Þegar farið var inn í Breiðabáshelli varð að ganga boginn til að byrja með. Síðan hækkaði rásin. Þá var komið að litlu opi. Innan við það heldur rásin greinilega áfram upp undir hraunið. Einnig eru rásir til hægri og vinstri. Ekki var lagt í langferð að þessu sinni. Hún mun bíða betri tíma. Ef hellirinn er eins og lýst hefur verið gæti hann verið meiriháttar. Einn maður er á lífi, sem farið hefur inn í hellinn, en hann komst ekki langt því það slokknaði á kerti, sem hann var með svo hann varð að snúa við. Ætlunin er að fara fljótlega aftur á staðinn með það að markmiði að skoða allan hellinn. Í leiðinni var skoðaður fjárhellir vestan við Breiðabás. Um er að ræða stóra hraunbólu. Engar hleðslur eru inni í henni.

Eldri fréttir