FERLIR-454: Kershellir – Hvatshellir – Ketshellir – Setbergssel – stekkur – hellir – kví – tóttir – Setbergsselshellir – Hamarkotsselshellir – tóttir.
Gengið var frá Sléttuhlíð upp að Selvogssgötu undir Smyrlabúðahrauni. Þaðan var gamla gatan gengin niður að Kershelli. Stór varða er á suðvesturbrún hans. Farið var niður í hellinn og hann skoðaður hátt og lágt. Hann liggur til vesturs úr jarðfallinu, um 40 metra langur. Segja má að hellirinn hafi verið óvenju fallegur því hæfilega löng grýlukert lágu niður úr svo til öllu lofti hans. Á leiðinni út var farið til vinstri, framhjá jarðfallinu, til austurs og þar inn í svonefndan Hvatshelli, sem séra Friðrik Friðriksson kom á spjöld sögunnar í frásögn hans af Sölva. Hellirinn er nefndur eftir félagsskapnum Hvöt, sem mun hafa farið þangað af og til og m.a. haldið samkomur sínar í honum. Hellirinn er nokkuð þröngur til að byrja með, en víkkar á ný í hvelfingu. Þá þrengist hann aftur, en opnast síðan inn í enn aðra hvelfingu.
Ketshellir er sunnan við Kershelli/Hvatshelli. Hann er í gróinni hraunrás í um 30 metra fjarlægð og liggur í sömu stefnu og Kershellir (vesturs). Hellirinn er rúmgóður og um 30 metra langur.
Vestan við hellana sér niður á grassvæði. Selvogsgatan liggur niður að því og áfram í gegnum það uns hún sveigir að Setbergsshlíð. Á norðanverðu svæðinu er stekkur í kvos. Hleðslur eru til að hindra uppgöngu úr kvosinni. Op er til vesturs. Vestan opsins er hraunkantur. Handan og fast við kantinn er enn eitt op á helli. Hann er þó mun styttri en hinir. Frá opinu liggur hann til austurs, á móti hinum.
Sunnan við opið sést móta fyrir kví í skjóli fyrir austanáttinni. Sunnar, syðst á grassvæðinu eru tóttir Setbergssels. Bæði hefur jarðsig verið notað svo og tóttir, sem þarna eru. Fyrir framan hól eru bogadregnar hleðslur fyrir helli. Þar er Setbergsselsfjárhellir. þegar komið er inn í hann miðjan er hlaðinn garður þvert fyrir hellinn. Hinn hlutinn er Hamarskotsselsfjárhellir. Hægt er að ganga í gegnum hellinn og er þá komið út þar sem verið hefur tótt Hamarskotssels. Geitur voru hafðar í helli þessum á fyrri hluta 20. aldar.
Svæði þetta er tilvalið fyrir þá sem vilja fara í síðdegisgöngu, en jafnframt skoða mikið á stuttum tíma. Gerður var uppdráttur af svæðinu.
Veður var með ágætum – bjart og stillt.
UPDATE:
Upplýsingar voru að berast um stóran útilegumannahelli í Kjalhrauni. Gangnamenn komu að hellinum fyrir mörgum árum, en höfðu gleymt honum. Hellirinn mun vera óþekktur. Inni er hlaðið bæli, auk fleiri hleðslna. Ekkert er vitað um hver, eða hverjir, kunna að hafa hafst þarna við. Verið er að staðsetja hellinn af nákvæmni, en FERLIR hefur þó takmarkaðan áhuga á honum þar sem hann er svo fjarri Reykjanesinu.
