Hér kemur lýsing FERLIRs manna á leiðangrum í Arnarseturshraunshella. Með fylgja GPS punktar og gróft kort af svæðinu.
FERLIR-503 Arnarseturshraun – Hnappur – Kubbur – Dollan – Dátahellir – Gegnumgangur – Skjóli – Naddi – Arnarseturshellir – Hestshellir – Flatur
Var farinn s.l. laugardag. Gengið var um Arnarseturshraun undir leiðsögn Björns Hróarssonar, hellafræðings. Fyrst var farið í Dolluna, sem rétt við gamla Grindavíkurveginn við bílastæðið á Gýghæð. Dollan opnaðist er þakið féll niður undan vörubíl þegar verið var að vinna við nýja veginn, en þá var svæðið þarna notað sem athafnasvæði verktakans. Opið er svo til alveg vestan til í svæðinu. Dýptin á fast er um mannhæð og hallar undir á alla vegu. Þarna þyrfti að vera góður stigi fyrir ferðafólk því hellirinn er aðgengilegur svona nálægt vegi. Fyrst þyrfti þó að hreinsa upp drasl, sem safnast hefur neðan við opið. Björn skellti sér niður og skoðaði hellinn. Hann nær spölkorn upp á við til austurs og einnig til vesturs og uppfyllir því öll skilyrði til að geta flokkast sem góður hellir.
Næst var gengið áfram niður hraunið og hraunrásinni fylgt til vesturs. Eftir u.þ.b. 500 metra endar rásin og við tekur hellir. Hann liggur í hægri boga og endar eftir u.þ.b. 50 metra. Þar er stórt op í gólfinu og sést niður á neðri hæðina. Mannhæða hátt er niður. Eftir að haf rutt niður grjóti til að búa til lendingarpall var hoppað niður. Þar liggur víð og góð rás til austurs, undir gólfið sem áður var gengið. Gólfið í rásinni er alveg hreint og slétt. Þessi hluti endaði eftir u.þ.b. 50 metra. Þar inni var bréfmiði á vegg, en letrið var ólæsilegt. Þó mátti greina dagsetningu og ártalið 1992. Þá var haldið til vesturs. Eftir um 30 metra var komið út í jarðfall. Úr því hélt rásin áfram um 20 metra uns komið var út úr henni á ný. Miðað við lýsingu á Hellinum Kubb gæti þetta vel verið hann. GPS-punktur af hellinum sýndi staðsetningu u.þ.b. 20 metrum norðar, en þrátt fyrir leit þar fannst ekkert op. Miðað við nýjan GPS-punkt, sem tekin var þar, gæti hér verið um misvísun að ræða. Um Kubb segir m.a. í lýsingu: “Kubbur er sennilega í sama hellakerfi og Dollan. Kubbur er á tveimur hæðum”.
Annað op fannst skammt austan við þann stað, næstum mannhæða djúpt. Björn hoppaði þar ofan í. Þarna reyndist vera hellir í sömu stefnu og hinir hellarnir, u.þ.b. 30 metra langur. Þessi hellir hefur ekki verið nefndur, en fær hér vinnuheitið Naddur í merkingunni nálægur. Erfitt er að koma auga á holuna nema ganga svo til beint á hana.
Við vorum ekki með GPS-punkt á Hnapp, en um hann er til eftirfarandi lýsing: “Hann er með skemmtilegri hellum, sem hægt er að komast í. Hann er ekki mjög langur, en hefur upp á margt að bjóða. Inngangurinn er í gegnum þröngt gasútstreymisop. Strax þegar niður er komið er hægt að fara á efri eða neðri hæð. Efri hæðin lokast fljótt, en neðri hæðin liggur góðan spöl inn þar til komið er að hraunfossi. Fyrir innan fossinn lækkar gólfið verulega. Þá er maður staddur í miðjum hellinum í stórumsal. Út frá þessum sal liggja rásir í margar áttir og ein þeirra liggur í hring”. Fróðlegt væri að fá nánari staðsetningu eða leiðarlýsingu á Hnapp.
Haldið var upp að vegavinnubyrgjunum austan Grindavíkurvegar og áfram upp fyrir þau. Þar eru hellar í hraunrás. Rásin er fallin niður á tveimur stöðum og er efri hlutinn öllu lengri, eða um 50 metra langur. Hann endar í hafti, sem aðskilur hann og efsta hluta hinnar miklu hraunrásar úr Arnarsetursgígnum. Í heildina er þessi hallahluti um 100 metrar á lengd. Þeir fá vinnuheitið Gegnumgangur. Á bökkum rásarinnar eru margar stórar og fallegar hraunæðar.
Loks var gengið niður í Dátahelli. Hann nefnist svo vegna þess að í honum fannst beinagrind er talin er hafa verið af amerískum hermanni er týndist í hrauninu að vetrarlagi allmörgum árum áður. Við skoðun reyndist hellirinn vera um 40 metra langur.
Veður var frábært – bjart og hlýtt miðað við árstíma.
Allar staðsetningar voru samviskusamlega skráðar, en þegar heim var komið uppgötvaðist að blaðið með öllum tölunum hafði gleymst við Dátahelli.
FERLIR-504: Hnappur – Flatur – stígur fráSeltjörn að Skógfellavegi.
Leitað var að Hnapp í Arnarseturshrauni. Skv. lýsingu Björns er hann hafði eftir nafna sínum Símonarsyni átti að leita hans í stefnu frá Hestshelli að Arnarseturshelli, nokkurn veginn miðja vegu, en þó heldur nær hinum síðarnefnda. Þar átti að vera yfirborðsrásakerfi og þar fyrir ofan hóll með lítilli vörðu. Við vörðuna eitt mjög lítið gasútstreymisop – þröngt og bratt, skrið og síðan niður í salinn.
Þessi lýsing gekk eftir. Nokkrar vörður eru þarna við smáskúta, en á nefndum stað fannst þröngt gat. Ekki er auðvelt að koma auga á það og því auðvelt að ganga þar framhjá. Opið er um 500 metra frá Hesthelli. Ekki er fyrir aðra en granna að renna sér og smeygja sér síðan niður um gatið. Þá er komið í fallegan rauðleitan geymi. Þarna er breið efri rás, en hún virðist enda fljótlega. Rásin liggur inn til norðvesturs, þurr og þarf að ganga þar hálfboginn. Þá þrengist hún og þarf að skríða nokkurn spöl áfram þangað til hún víttkar aftur. Rás til hægri lokast og svo virðist sem vinstri rásin lokist líka, en þegar komið er í enda hennar sér niður um op. Þar fyrir neðan er rúmgóður salur með nokkrum rásum.
Hnappur er með fallegri hellum og alveg heill, en lítið er um myndanir í honum. Þó eru þær til fremst í honum þar sem komið er niður. Um 30 metrar eru að niðurgangnum, en í heildina gæti hellirinn þess vegna verið hátt í hundrað metra langur.
Eftir þessa skoðun var hraunið gengið til norðurs uns komið var að opnum skúta í hraunbólu. Á honum er varða. Rásir liggja til hægri og vinstri, en þar virðist vera um yfirborðsrásir að ræða. Norðan við skútann er áberandi gata í gegnum hraunið. Hún virðist koma frá Seltjörn og í boga í gegnum Arnarseturshraun. Við fylgjum götunni langleiðina yfir að Skógfellastíg. Þarna virðist vera um að ræða götu frá Njarðvíkum yfir á stíginn. Hún er lítt áberandi næst Grindavíkurveginum, en þegar komið er u.þ.b. 300 metra austur fyrir hann er gatan mjög greinileg og er þannig áfram í gegnum hraunið.
Á leiðinni til baka var komið að rás norðaustan við Hesthelli. Við opið er varða. Rásin er fremur lág, en liggur til vesturs undir hraunið. Eftir u.þ.b. 20 metra beygir hún til norðurs og lækkar. Síðan beygir hún til norðvesturs og heldur áfram. Skríða þarf hana á þeim kafla. Við skoðuðum um 50 metra af henni, eða þangað til skríða þurfti á maganum. Gáfum rásinni vinnuheitið Flatur.
FERLIR-503:UPDATE:
Farið var aftur í Arnarseturshraun og GPS-punktar endurteknir. Við það fannst hellir, er nefndur hefur verið Skjóli sem og Kubbur að öllum líkindum.
Farið er inn í Skjóla, sem er nokkuð norðan við Nadda, inn í hraunbólu. Inn úr henni liggja rásir bæði til norðurs og suðurs. Ýmislegt bendir til að þetta séu yfirborðsrásir, en þarna örskammt frá er allnokkurt jarðfall er bendir til að þar undir hafi runnið talsvert hraun. Skjóli var ekki kannaður að þessu sinni, einungis framan við rásirnar er liggja inn.
Á leiðinni til baka var aftur hugað að hraunhól, sem lítil varða stendur á, og skoðaður hafði verið daginn áður. Hóllinn er skammt vestan við Dolluna. Í honum eru tvö gasuppstreymisop. Eystra opið er þröngt, en liggur inn til norðurs og víttkar síðan og hallar niður á við. Þarna gæti vel verið um opið á Hnapp að ræða. Fötin gáfu ekki tækifæri til að elta rásina lengra niður að þessu sinni, en þarna er svolítið skrið til að byrja með.
Með þessu fylgja síðan GPS-punktar af Arnarseturshellinum norðan gýgsins, sem skoðaður var fyrir nokkru síðan og hefur verið notaður til að sýna ferðafólki. Þá fylgja og með punkar af Hestshelli, sem þarna skammt norðar, en hann er um 160 metrar á lengd.
Ferðin var notuð til að gera uppdrátt af svæðinu og merkja þar inn á alla hellana níu. Skilið var eftir autt pláss fyrir enn ófundna hella þarna.
_______________________________
Arnarseturshraunshellar:
Hnitin eru gefin í WGS84 datum og eru birt á forminu (NXX°XX.XXX’ – V0XX°XX.XXX’)
Kubbur (6354148-2226298)
Hnappur (6354535-2224561)
Dollan (6354190-2225314)
Dátahellir (6354254-2225206)
Gegnumgangur (6354197-2225142)
Skjóli (6354306-2225904)
Naddi (6354178-2226152)
Arnarseturshellir (6354425-2224456)
Hestshellir (6354721-2225110)
Flatur (6354756-2224895)
Hvalur (6354599-2225905)

