Eftir fund Ginsins hafa félagar HERFÍ iðað í skinnina og beðið þess ólmir að berja undrið augum. Af þessu varð í dag. Föngulegur hópur hellaáhugamanna, undir leiðsögn Ómars Smára, þrammaði um Hrútagjárdyngjuna með það eitt að markmiði að skoða 2 “nýja” hella og einn vel þekktan. Fyrstur varð á vegi okkar hellir sem fengið hefur nafnið Kokið. Hér er um að ræða 15-20m djúpa sprungu í hrauninu. Sprungan er þröng og því best að skilja bjórvömbina eftir heima. Jakob, James og Francesco nudduðu sér niður og telst Kokið því fullkannað. Svo virðist sem bráðið hraun hafi runnið í sprungunni, því nokkuð er um hraunfossa, rennslistauma og 8-10cm hraunskán sem þekur allt yfirborð sprungunar. Hraunskánin myndast jafnt á lofti sem veggjum. Sprungan hefur framhald bæði að ofan og neðan, en vegna ofvaxtar hellamannanna varð ekkert úr frekari landvinningum. Næst var haldið í átt að Gininu, með viðkomu í Húshelli (sjá hugleiðinar Ómars um Húshelli). Húshellir er í alfara leið og er nokkur hundruð metra langur. Eftir að hafa gengið á sléttu helluhrauninu, hoppað yfir sprungur og sokkið í mosa, komum við að Gininu. Ginið er magnaður hellir og er án efa mest “töff” hellafundur síðan Chris Wood og félagar fundu Eldhraunshellana. Ginið er um 10-15m djúpt, trektlaga og snjór er í botni þess. Á yfirborði er ekki að sjá greinileg ummerki um gjall eða klepra, og því stendur þetta gat út í auðninni eins og skrattinn úr sauðaleggnum. Því miður höfðum við ekki tíma til að skoða Ginið að fullu, en til að það sé hægt þarf að hafa klifurbúnað og góðan tíma.
GPS-punktar (WGS 84):
Kokið N63°57,669′ og V21°59,963′
Ginið N63°59,278 og V21°59,539′

