Annan í jólum síðastliðinn hélt Íshelladeildin einbíla inn að Eyjabakkajökli til að kanna Eyjabakkahelli. Haldið var frá Egilsstöðum kl. 13:00 og farið austan Snæfells inn eftir Eyjabökkum. Heldur gekk ferðin hægt vegna snjóleysis og krapa. Þegar eftir var uþb. 1km inn að Eyabakkajökli komum við að þverá nokkurri sem var á veikum ís, háar skarir og nokkuð djúpt. Eftir að hafa leitað upp og niður með allri ánni upp að fossi var ákveðið að reyna að fara yfir á ísskör sem þótti traust. Ekki vildi betur til en Hiluxinn stakst niður um ísinn að framan og kaf í ána. Stóð hann þarna upp á endan gjörsamlega fastur. NMT-samband dautt! Hófst þá grjótburður og svaml mikið í kaldri ánni við að púkka undir framdekk bílsins og spilun í þann eina jarðfasta stein sem var á svæðinu. Eftir uþb. tveggja tíma svaml í ánni náðist bíllinn upp. Þar sem skyggja var tekið og menn blautir og kaldir, var afráðið að snúa við í þetta sinn. Svo langt komumst við að við sáum í svart op Eyjabakkahellis.
Haldið var aftur inn að hellinum núna fyrir nokkrum dögum. Jökullinn hefur hopað mikið og hellirinn hruninn og ekki svipur hjá sjón.
Kveðja frá Íshelladeild HERFÍ
