Á Reykjanesi eru þekktir fjölmargir hraunhellar og enn bætist í safnið. Gönguhópurinn FERLIR (Ferðahópur rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík), sem Ómar Smári Ármannsson leiðir, hefur gengið fram á mörg op á ferðum sýnum um Reykjanesið og nú var komið að því að sýna hellamönnum djásnin. Í för með Ómari Smára voru þeir Eyjólfur Sæmundsson, Björn Á. Einarsson og Örlygur S. Sigurjónsson. Til gamans má geta að Örlygur er ekki alveg ókunnugur hellamönnum því hann skrifaði frétt í Morgunblaðið um Arnakerið í Leitahrauni hér um árið. Það er skemmtilegt að segja frá því að fjórir ítalskir hellamenn komu með okkur í þennan könnunarleiðangur á Reykjanesið. Hópin leiðir Francesco Petralia, “hard-core” hraunhellamaður sem mikið hefur skriðið um í Mt. Etnu, en aðrir eru Barbara Sgarlata, Renato Bonaccorso og Antonio Marino. Fyrir hönd HERFÍ voru þeir Jakob Þ. Guðbjartsson, Sigurður S. Jónsson, Björn Hróarsson, Þórarinn Björnsson, James Begley og Óskar J. Hlöðversson mættir og tilbúnir í aksjón.
Skoðaðir voru fjórir hellar í þessar lotu, en félagarnir úr FERLIR tjáðu okkur að þeir ættu rúmlega tvöhundruðu GPS punkta af hellum og gjótum hér og þar um landið. Fyrsti áfangastaður hópsins var rétt utan við Hafnarfjörð. Hraunin koma úr Hrútagjárdyngju og er hellirinn við hraunmót Kapelluhrauns og Hrútargjárdyngjuhraunsins. Í ljós kom að hér var ekki um að ræða stóran helli og var strax haldið á næsta stað. Í Tvíbollahrauni, NA. við Grindaskörð, er lítið op í hrauninu (1x1m) sem opnast í 4-5m djúpt holrými. Þessi hellir er stuttur og tekur um 5-10mín að skoða hann allan. Notast þarf við stiga eða klifurlínu til að komast ofan í hellinn. Næst var haldið í átt að Herdísarvík en þar er Sængurkonuhellir í Herdísarvíkurhrauni, sem rennur úr Brennisteinsfjöllum. Þessi hellir liggur 3m norðan við veginn og er alveg kjörin áning fyrir hellaþyrsta ferðalanga. Hraunið hefur kvíslast í mörgum hraunrásum, en þær sem sjást í Sængurkonuhelli lokast allar í þrengslum. Ein þessara hraunrása er þó sýnu fallegust, því í lofti hanga strá og á gólfi hafa hlaðist upp dropsteinar. Mannvistaleyfar sjást í hellismunanum. Ekki er vitað um marga hraunhella á Íslandi sem myndast í miklum halla, en einn slíkur er í Mosaskarði í Herdísarvíkurhrauni. Hellirinn sjálfur er stuttur, nokkrir tugir metra, en hraunrásin sjálf er mjög falleg og lögun hennar einstök. Hægt er að klifra ofan í hann, en best er að taka með stiga eða klifurlínu.
HERFÍ vill þakka gönguhópnum FERLIR fyrir að sýna hraunhellum áhuga og koma þeim á framfæri við félagið.
GPS-staðsetning þeirra hella sem voru skoðaðir. Hnitakerfið er WGS85 og format hnitana er Lat/Lon hddd°mm.mmm’.
Hrútagjárdyngja N64 01.081 W21 58.460
Tvíbollahraun N63 59.300 W21 45.120
Sængurkonuhellir í Herdísarvíkurhraun (kemur úr Brennisteinsfjöllum) N63 51.932 W21 52.803
Mosaskarð (hraun kemur úr Brennisteinsfjöllum) N63 52.569 W21 47.793
