Aðalfundur Hellarannsóknafélags Íslands var haldinn skv. auglýsingu í Miðbergi við Gerðuberg þann 3. apríl kl. 20.00
Helstu niðurstöður aðalfundar voru
Óbreytt stjórn var samþykkt einróma. Einnig er stjórnarskipan óbreytt. Stjórnin er því sem áður: Guðni Gunnarsson (Formaður), Sigurður Sveinn Jónsson (Gjaldkeri) og Arnar Logi Elfarsson (Ritari).
Reikningar félagsins voru samþykktir einróma án athugasemda.
Skipað var í tvær nefndir:
Í ferðanefnd voru skipaðir: David Gunnar Karna, Þórir Már Jónsson og Arnar Logi Elfarsson.
í verndunarnefnd voru skipaðir: Árni B. Stefánsson og Guðni Gunnarsson.
Á fundinum var farið yfir starfsárið 2013 og það helsta í starfseminni reifað. Einnig fór fram sýning á áður ósýndum ljósmyndum. Mest úr hellum sem fundist hafa nýlega.
