“Post-symposium” ferð norður í land

Eftir ráðstefnuna var boðið upp á þriggja daga ferð um hálendi íslands.  Í þessa ferð fóru sextán manns.  Hér stikklar Sigurður S. Jónsson, formaður Hellarannsóknafélagsins, á helstu viðburðum ferðarinnar. 

Norðurferðirn var glymrandi góð og tókst í alla staði mjög vel. Við fórum snemma á mánudagsmorgni og ókum í sudda og dumbungi í Hrauneyjar, en þaðan tók að birta á Sprengisandi og eftir um klukkutíma akstur var komin rífandi blíða og sólskin. Við borðuðum nesti í Nýjadal og ókum sem leið lá og vorum á Fosshóli seinnipartinn. Þá var farið í smá skoðunarferð um Skútustaðagíga, keyptur reyktur silungur hjá Gylfa á Skútustöðum og síðan var ekinn hringurinn hjá Grjótagjá. Gjáin er þekkt í hellafræðunum og er einn þeirra hella sem best eru þekktur frá Íslandi í gömlum hellabókum. Fyrir utan gjána voru matgæðingar Hellarannsóknafélagsins búnir að reiða fram rúgbrauð með reyktum silungi að mývetnskum hætti, í forrétt. Síðan var farið í Kröflu og borðaðu kvöldmatur. Eftir matinn var farið með um átta manna hóp í Vogagjá, og um fimm menn í gufubaðið. Síðan var lagst í bæli. Snemma á mánudagamorgni var farið af stað í Lofthelli og ekið nánast alla leið að honum og staðið við hellisopið um klukkan 9. Komið var upp úr hellinum eftir miklar myndatökur rétt eftir hádegi og farið til baka. Restinni af deginum var eytt við að labba á Leirhnúk, skoða Víti, fara inn að Hrafntinnuhrygg, Dimmuborgir fyrr um daginn, og sitt lítið af hverju. Endað í hamborgarhrygg með öllu í kvöldmat og enn á ný farið í Vogagjá og lúin bein böðuð og hvíld. Þá var slappað af og í gærmorgun var ræst snemma og farði beint inn á Akureyri, þar sem einum var hent á flugvöllinn, og restin dólaði sér inn Kjöl í sól og blíðu. Staldrað var við á Hveravöllum í tæpa tvo tíma og síðan var fjallahringsins notið á leiðinni heim. Smá kaffistopp á Geysi, og síðan í bæinn.

Eldri fréttir