Vinnuferð á Snæfellsnesið

Helgin 9-10 nóvember

Enn og aftur höldum við James Begley á Nesið í þeirri von að nú takist okkur að klára að kortleggja hellana ofan við veg í Purkhólahrauni.  Lagt var af stað á laugardagsmorgni og stefnan sett á Hellissand en þar ætluðum við að hitta Skúla Alexandersson, fyrirverandi þingmann og hellaáhugamann.  Í rjómablíðu renndum við upp að gistiheimilinu Gimli þar sem Skúli beið okkar.  Sem áhugamaður um hellarannsóknir fylgdi hann okkur að Purkhólahrauninu.  Á leiðinni benti hann okkur á Eyvindarholu og annan helli rétt sunnan við, en þetta munu vera einu hellarnir sem þekktir eru ofan vegar, vestan megin jökuls.

Það tók okkur James nokkra stund að komast í hellagallan, en á meðan stótti Skúli kaðalinn í Vatnshelli. Vatnshellir hefur mikið látið á sjá undanfarin ár og greinilegt að umferð um hann fer vaxandi. Meðlimir Hellarannsóknarfélags Íslands samþykktu á Október fundi sínum að réttast væri að taka kaðalinn í burtu, eftir að fyrirspurn barst frá Þjóðgarðsverði um viðhorf félagsins til kaðalsins, og þannig koma í veg fyrir meiri skemmdir á Vatnshelli.  Í framtíðinni verður aðstaða fyrir ferðamenn bætt (eða það skulum við vona) þannig að skemmtir í hellinum verði lágmarkaðar og aðgengi gert viðunandi fyrir forvitna ferðalanga.

Við James röltum með Skúla og konunni hans að Hrossabeinshelli, en nú átti að klára kortlagningu sem þegar hafði tekið einn og hálfan dag.  Skúli hafði haft spurnir af Hrossabeinshelli, en aldrei gert sér ferð til að finna hann.  Við James byrjuðum að kortleggja hliðarrásir sem liggja upp frá aðalrásinni.  Hér er um að ræða þrönga en nokkuð langa rás sem liggur nær samsíða aðalrásinni.  Okkur til mikillar gleði fundum við mikið af grænum útfellingum í bland við hvítar og gular.  Ljóst er að atacamite er nokkuð víða um hellin, og þá helst í og við sprungur.  Við héldum kortlagningu áfram fram á kvöld, og vorum þó ekki búnir, því um allt liggja þröng milliloft og gatnamót.  Hellirinn er mjög hruninn, þröngur og torfarinn þegar sem við hættum kortlagningu, og gæti svo farið að kortlagningu yrði slegið á frest uns mikill skriðvilji lætur á sér kræla.

Staða kortlagningar á Hrossabeinshelli, samatekt:

Mæld vegalengd460m
Dýpi12,8m
Lengd á yfirborði87m
Breidd á yfirborði67m
Yfirborðsflatarmál5870m2
Rúmmál1400m3
Meðalhalli8,2°

Ofanvarp á Hrossabeinshelli.  Opið er ofarlega í vinstri álmu.

Á sunnudeginum var haldið í Snjóhelli og hann allur mældur.  Töluleg samantekt fyrir snjóhelli:

Mæld vegalengd282m
Dýpi19m
Lengd á yfirborði138m
Breidd á yfirborði89m
Yfirborðsflatarmál12230m2
Rúmmál8210m3
Meðalhalli8,6°

Ofanvarp á Snjóhelli.

Eldri fréttir